Naflaló

Mögnum svo seið
að leið verði greið

þriðjudagur, apríl 29, 2003

Jæja Samnernur.
Þá er komið að því. Ég verð í bænum í lækningaleiðangri 19. og 20. maí, hef huxað mér að mæta á svæðið föstudagskvöldið 16. þess mánaðar. Nú þarf að gera gífurlegt plan.
Kæra Yfirnorn, er gestadyngja á heimili yðar laus undir Landsbyggðarnorn, ca. föstudag til miðvikudags í kringum téðar dagsetningar?
Annars hef ég huxað mér að gera margt og mikið m.a. heimsækja Berglindi og Nönnu (hverrar heimili ég hef ekki enn barið augum, skammskamm) Og reyna að hitta mikið, kjafta, spá og spekúlera.
Svandís, verður þú a) ennþá á landinu, b) ennþá í prófum?
Heiða, verður þú a) á landinu, b) Úti í E**** að r***?
Eru aðrir ekki bara annars í stuði? Ætla að reyna að stefna á að hafa veislu, vítamín og fjör í hvívetna.
Vonandi sé ég að minnsta kosti alla.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home