Naflaló

Mögnum svo seið
að leið verði greið

fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Nornir láta ekki vaða yfir sig! Ég er hetja! Frelsari smárra rýma! Reistar verða styttur í smáíbúðahverfum mér til heiðurs!

Ég gjörsamlega missti mig á kjallaranum áðan - tók allar málningadollurnar, hjólið, grillið, hjólaskautana, steinana, pokana af vikri (!) og allt hitt draslið sem "hinn" leigjandi hafði dreift um alla ganga og henti inn í geymslu. Sópaði síðan gólfi vel og vandlega. Hann skal fá það aftur ef ég sé aldrei örðu á ganginum í framtíðinni. Næst verður farið með dótið á haugana - mér er alveg sama hversu nýtt það er. Verst að fíflið var ekki heim og mér verður sennilega runnin reiðin áður en ég næ að lesa yfir honum.

Vantar einhvern nýlegt eldrautt gírahjól? Fer ódýrt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home