Naflaló

Mögnum svo seið
að leið verði greið

miðvikudagur, september 15, 2004

Þetta hérna er ótrúlega sniðugt, maður getur á einum stað séð öll bloggin sem maður les og hvort það er eitthvað nýtt á þeim. En til að þetta virki þá þarf bloggið að vera rétt stillt, og sum blogg, sérstaklega sem eru búin að vera til lengi, eru það ekki. Þannig að, krúslurnar mínar, svo ég missi nú ekki af neinu, eruð þið til í að fara í bloggið ykkar í settings og site feed og stilla publish á yes. Þetta vantar t.d. á þetta blogg hér (Ásta ert þú ekki með aðgang að stillingunum), og á bloggin hjá Siggu Láru, Siggudís og Svandísi.

mánudagur, september 13, 2004

Ég segi bara eins og Bangsímon þegar mikið liggur við, ansans! Ég þarf að halda barnaafmæli um næstu helgi og mig grunar að barnaafmæli og nornafundur sé ekki góð blanda á sömu helgi. En ég mælist eindregið til þess að það verði haldinn annar nornafundur í nærveru Svandísar og er alveg til í að leggja fram húsnæði með arineldi. Hvað verðurðu lengi Svandísin mín?