Naflaló

Mögnum svo seið
að leið verði greið

föstudagur, desember 17, 2004

Verð að sjá hvernig þetta kemur út...

open

solitary

solid
Your World (Part One): What is your world made of? [girls]

brought to you by Quizilla

Ég reyndi að sitja á mér en gat það því miður ekki, ég bara verð að tíkast aðeins út í annað jólalag: "húrra fyrir öllum þeim sem halda heilög jól". Og hvað með alla hina í heiminum, gyðinga og múslima og búddista og allt hvað eina, má morrinn bara hirða þá af því þeir halda ekki jól?

Svo skal ég hætta núna. Eða alla vega reyna :-)

miðvikudagur, desember 15, 2004

P.s. Ekki slá inn "jólin hlakkar" í Google, þið farið bara að gráta. T.d. þetta: "Flest hlakkar okkur til jólanna...". Alla vega ekki MÉR!!! Svei því bara!

Í hinu annars ágæta jólaútvarpi Latabæ heyrði ég í dag þessi ósköp: "gleði um jólin og OKKUR HLAKKAR TIL". Oft og mörgum sinnum því þetta er í viðlaginu. Það sem ég skil ekki er að það hlýtur að þurfa slatti af fólki að koma nálægt því að koma svona löguðu í útgáfu, fyrir utan höfundinn er það að minnsta kosti flytjendurnir og upptökumaðurinn/mennirnir (eða konurnar) og sjálfsagt einhverjir fleiri. Er fólkið ekki að hlusta, ekki að hugsa, eða er bara málið að hafa skal það sem betur passar við taktinn í laginu?

þriðjudagur, desember 14, 2004

Þetta er skenntilegt.

daydream
Wake up! You're Mr. Daydream! :)


Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla